Nýjustu upplýsingarnar um YOSCIWEB verkefnið má finna á enska hluta heimasíðunnar, sem opnast þegar smellt er á breska fánann í efra horninu hér hægra megin.

Internetið er orðið vinsælasti miðill ungs fólks í leit að upplýsingum um vísindi og tækni.  Hvernig er best að miðla vísindum gegnum þennan miðil?  Hverjar eru bestu leiðirnar til þess að miðla fræðsluefni um vísindi og vísindamenn til ungs fólks gegnum netið?  Hvers konar ímynd gefa vefsíður af vísindum og vísindamönnum?  Hvernig geta vefsíður náð betur til ungs fólks?

Okkur langar til þess að kynna þig fyrir YOSCIWEB verkefninu, sem hefur það fyrir stafni að leita svara við ofantöldum spurningum.  YOSCIWEB verkefnið er skipulagt af samtökum í 7 löndum:  Búlgaríu, Eistlandi, Frakklandi, Íslandi, Hollandi, Spáni og Bretlandi.  Verkefnið stendur fram til ársloka 2009 og er styrkt af sjöundu rammaáætlun Evrópubandalagsins um rannsóknir og þróun (e. EU Framework for Research and Development).

Við ætlum að:

* Greina hvernig vefsíður um vísindi skapa og endurnýja ímynd vísinda og vísindamanna meðal ungs fólks.
* Bera kennsl á frumkvöðlastarfsemi sem fæst við að koma öðru en staðalímyndum um vísindi  á framfæri meðal ungs fólks.
* Byggja upp gagnabanka af fyrirmyndum og meðmælum um skilvirkustu leiðirnar til þess að láta vísindi og störf í vísindum höfða til ungs fólks í gegnum netið.

YOSCIWEB samtökin munu:

* Athuga núverandi rannsóknir á miðlun vísinda til ungs fólks gegnum netið.
* Skrá núverandi vefsíður um vísindi í aðildarríkjum verkefnisins.
* Meta gæði núverandi vefsíðna um vísindi og greina framsetningu efnis og tæknina sem vefirnir nota.
* Setja á stofn rýnihópa með ungu fólki á aldrinum 12-18 ára, með það fyrir stafni að greina hvernig ungt fólk notar vefsíður um vísindi.  Nokkrir rýnihópar af ungu fólki á ýmsum aldri verða settir upp í öllum þeim ríkjum sem taka þátt í verkefninu.
* Greina bestu aðferðir viðkomandi vefsíðna við að miðla ímyndum um vísindi og vísindamenn.
* Búa til lista af aðferðum og meðmælum varðandi miðlun vísinda til ungs fólks gegnum netið.

Niðurstöður verkefnisins munu reynast gagnlegar þeim fjölmörgu aðilum sem fást við miðlun vísinda (t.d. vefstjórum, kennurum, söfnum, stjórnmálamönnum, vísindamönnum og blaðamönnum).

Þú getur skráð þig á www.yosciweb.eu og fengið upplýsingar um framvindu og niðurstöður rannsóknarinnar.  Þú munt einungis fá 6 fréttabréf á meðan á verkefninu stendur og netfangi þínu verður ekki deilt með öðrum aðilum.

Alþjóðleg sjónarmið og fyrirmyndir geta gert mikið til þess að bæta miðlun vísinda.  Gangtu endilega til liðs með okkur í að auka áhuga ungs fólks á vísindum.

Bestu kveðjur,


YOSCIWEB samtökin

 
English (United Kingdom)Estonian (EE)French (Fr)Español(Spanish Formal International)Icelandic (IS)Nederlands (NL-BE)Български (България)
Subscribe to Newsletter
Dutch
Bulgarian
French
English
Estonian
Spanish
Icelandic